
Friðrikssjóður
Knattspyrnufélagið Valur hefur sett á laggirnar styrktarsjóð sem hlotið hefur nafnið Friðrikssjóður í höfuðið á séra Friðriki Friðrikssyni, stofnanda Vals.
Hlutverk sjóðsins er að tryggja að allir núverandi og framtíðar iðkendur Vals geti staðið straum af þeim kostnaði sem fylgir því að stunda íþróttir í Val og tryggja að ekkert barn sem vilji stunda íþróttir verði meinað að gera slíkt sökum fjárskorts á heimili sínu.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál sem aðeins stjórn Friðrikssjóðs hefur aðgang að. Þrír skipa stjórn sjóðsins, einn er tilnefndur af aðalstjórn Vals, annar af stjórn Barna- og unglinasviðs Vals og þriðji er starfandi framkvæmdastjóri félagsins.
Stjórn Friðrikssjóðs er sem hér segir fyrir árið 2020-2021:
-
Alda Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Vals
-
Gunnar Örn Arnarson, tilnefndur af barna- og unglingasviði Vals
-
Þorgrímur Þráinsson, tilnefndur af aðalstjórn Vals
Öllum umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið alda@valur.is eða í umslagi merktu Friðrikssjóður á skrifstofu Vals.
