
Íþróttaskóli Vals
Fyrir hverja er íþróttaskólinn?
Íþróttaskólinn er hugsaður fyrir leikskólabörn sem fædd eru 2018-2022 (eða frá 18 mánaða - 5 ára), en markmið hans er að kynna fyrir börnunum hinar ýmsu íþróttagreinar og leiki. Í skólanum læra börn að leika sér saman, leika með foreldrum auk þess að fylgja fyrirmælum kennara og vinna í hópum. Fyrsti tími haustannar er laugardaginn 26. ágúst.
Skólinn verður starfræktur á laugardagsmorgnum í Valsheimilinu að Hlíðarenda
-
Börn fædd 2021-2022 (f. 1. jan - 1. maí): Eiga tíma frá kl. 9:00-9:40
-
Börn fædd 2018-2020: Eiga tíma frá 9:45-10:25
Stjórnandi íþróttaskólans er Tanja Geirmundsdóttir en hún hefur starfað við skólan um árabil og verður veturinn fullur af fjöri og skemmtun fyrir krakkana.
Minnum á að mikilvægt er að skrá börnin sem fyrst í skólann til þess að ná örugglega plássi. Það er gert á skráningasíðu félagsins: www.sportabler.com/shop/valur
Foreldrar, forráðamenn og aðrir sem fylgja börnum á æfinguna eru hvattir til að taka virkan þátt og aðstoða börnin í leik og hreyfingu. Mikilvægt er að mæta í þægilegum fötum og gott að vera berfætt til að ná sem bestu gripi á gólfinu.
Vakni upp spurningar varðandi skráningu er hægt að hafa samband við íþróttafulltrúa Vals, Gunnar Örn Arnarson í síma 414-8005 / gunnar@valur.is. Skrifstofa Vals er opin alla virka daga frá kl. 09:00-16:00

